segunda-feira, 10 de janeiro de 2011
Eivör á leið til Eyja!
Þann 3. mars næstkomandi mun hin magnaða og frábæra lista- og söngkona Eivör Pálsdóttir heiðra okkur með nærveru sinni. Eivör mun halda eina tónleika hér í Eyjum og gefst fólki kostur á að hlýða á magnaðan fluttning þessarar frábæru söngkonu á um 90 mínútna tónleikum þar sem t.d. mun heyrast „Ég veit þú kemur“ í mögnuðum fluttningi Eivarar ásamt aðstoðarmönnum.
Sísi Ástþórsdóttir mun hita upp fyrir Eivör en Sísí hefur verið að slá í gegn upp á síðkastið í uppfærslu LV á Konungi ljónanna.
Miðsala hefst þann 17. janúar í Eymundsson Vestmannaeyjum og einnig á www.midi.is.
Via Eyjafréttir.is
Assinar:
Postar comentários (Atom)
Nenhum comentário:
Postar um comentário