sexta-feira, 1 de abril de 2011

Ferðalag Fönixins: um listina að deyja og fæðast á ný


Magnaður leikhúsviðburður þar sem Eivør Pálsdóttir söngkona, Reijo Kela nútímadansari og María Ellingsen leikkona blása hvert með sínum hætti lífi í glóðir hinnar táknrænu goðsögu um Fönixinn. Áhorfendur eru leiddir inn í draumkenndan heim og upplifa sýninguna í miklu návígi við listamennina.

Hvað gerum við þegar stoðum lífsins er kippt undan fótum okkar og tilveran hrynur?

Goðsagnir vísa okkur veginn, líkt og landakort, þegar lífið leiðir okkur á ókunnar slóðir. Sagan um Fönixinn veitir áhorfandanum tækifæri til að spegla eigin lífsreynslu, ferðast með fuglinum inn í eldinn þar sem hann brennur upp, umbreytist og tekur flugið á ný - úr svartasta myrkrinu rís dagur nýrrar vonar.

Það er hópur ólíkra og sterkra listamanna sem semur verkið, sami hópur og stóð að Úlfhamssögu sem hlaut tvenn Grímuverðlaun og sjö tilnefningar til Grímunnar árið 2005. Á sviðinu standa saman María Ellingsen leikkona sem leiðir hópinn, Eivör Pálsdóttir sem semur og fremur tónlistina og Reijo Kela sem leggur til sinn einstaka tilraunadans. Snorri Freyr Hilmarsson leikmyndahöfundur, Filippía Elísdóttir búningahönnuður og Björn Bergsteinn Guðmundsson ljósameistari skapa myndheim sögunnar af sinni alkunnu snilld. Verkið er mjög persónulegt þar sem listamennirnir blása hver með sínum hætti lífi í glóðir þessarar táknrænu goðsögu. Verkið er flutt í miklu návígi við áhorfendur sem sitja í hring um sviðið. Frumstæður kraftur, hráar tilfinningar og ófullkomleiki fylla hinn draumkennda heim, tjáðan með mögnuðum tónum og seiðandi takti í leik, söng og dansi.

Kaupa miða HÉR!

Via: LISTAHATID.IS

Nenhum comentário:

Postar um comentário